Lífið í litlum kössum
Fór með Hannesi, Elke og Ingó í jeppaferð í dag. Við keyrðum sem leið lá austur í Selfoss og tókum olíu. Svo rúlluðum við upp að Laugarvatni og þaðan var keyrt beint norður að Hlöðufelli. Við fórum í þetta skipti austan við fjallið og komumst að því að sá vegur er um það bil jafn lélegur og sá verstari. Svo var beygt í austur fyrir norðan fjallið og á endanum sveigt suður í Haukadal og stoppað við Gullfoss. Við Hannes erum svo auðvitað núna orðnir staðráðnir í að klífa Hlöðufellið.
Þetta var fínn túr því maður var ekkert of mikið að hossast. Ég var kannski full fjörugur enda má ég bara ekki við því að fá nammi lengur. Mataræði mitt er orðið svoleiðis að ég borða nánast engan sykur lengur en þegar það gerist verð ég, eins og Scooter segir, alveg "Hypa Hypa" (þá meinar hann sko "Hyper"). Við vorum með 1.6 þjóðverja í bílnum svo að við urðum auðvitað að kaupa nammi með klóróformi og kóngabrjóstsykur.
Þegar við vorum að koma í bæinn hringdi Doddi og spurði hvort við vildum ekki hjálpa sér við að flytja nokkra kassa. Doddi og Dabby eru nefnilega að flytja til Svíþjóðar og allt sem þau eiga er komið í kassa. Við komum auðvitað og bárum kassa. Ég var meira að segja bara frekar duglegur. Venjulega er ég mest í því að segja lélega brandara og þvælast fyrir.
