fimmtudagur, 24. júl 2003

Lagfæringar

Þeir sem koma hingað nógu reglulega gætu haldið að ég geri ekkert annað en að laga þessa blessaða heimasíðu mína. Sem er svosem ekki fjarri lagi. Ég skrifa örugglega meiri kóða utan um dagbókina en fer af texta inn í hana. Núna er ég búinn að bæta við fullt af hlutum í wikikerfið sem ég mun sennilega aldrei nota. Bíttar engu, ég kem til með að nota þetta kerfi mitt á amk. 2 aðrar síður… betra að það sé nokkuð vel tilbúið áður svo ég þurfi ekki að gera lagfæringar á þremur síðum í einu.

Það er ekki eins og ég hafi mikið af betri hlutum að gera. Ég hef litla vinnu haft í sumar vegna þess að viðskiptavinir mínir fóru allir í sumarfrí. Samningar standa ókláraðir og verkefni á bið. Þetta er annað sumarið í röð þar sem ég lifi á sultarmörkum vegna þessa. Enda er ég núna alveg búinn að fá nóg af þessu rugli og er að leita mér að fastri dagvinnu. Látið mig vita ef þið vitið af einhverju sniðugu framtíðarstarfi.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar