Borgar.net

— Jump to the navigation index

fimmtudagur, 3. júl 2003

Hjólreiðar

Ég ákvað í hádeginu að fara og skoða mér bakpoka í 66°N í Faxafeni. Mig langar í ca. 30 lítra bakpoka með hörðu baki og lofkælikerfi, góðri hirslu að framan og helst þægilegum hólfum úr neti á hliðunum; Það mundi ekki skemma fyrir ef það væru teygjubönd á honum líka.

Mér hafði verið sagt að það væri útsölumarkaður frá þeim þarna í Skeifunni og ég vildi skoða hann aðeins betur (drasl). Nema hvað; Ég ákveð að hjóla þetta bara. Þegar ég var svo kominn niður í Skeifu ákvað ég svo bara að skella mér niður í miðbæ líka. Það er að segja, ég ákvað að setja hjólið í viðgerð/stillingu hjá ”Borgarhjóli” á Hverfisgötu. Huss…

Það er sök sér að hjóla svona Grafarvogur->Miðbær á svo að segja gírlausu hjóli, en að sameina þetta við verslunarferð er algjör vitleysa. Það er lygilegt hvað búðarrápið bætir ofan á þetta. Ég er alveg búinn eftir daginn.

Morgundagurinn fer svo í að hjóla heim (ef að hjólið verður tilbúið eins og mér var lofað) með stoppi í Kringlunni (Nanoq & apótekið), Skeifunni (Everest), Spöng (Ríkið)… Sem sagt, ég lærði nákvæmlega ekkert af reynslunni! Að vísu keypti ég mér fjórar af bestu Akira Kurosawa myndunum ásamt [[http://us.imdb.com/Title?0078252|Snake in the Eagle's Shadow]] svo að ég get alveg verið bara úr sambandi í kvöld.

Published: 3. 7. 2003 23:31.