laugardagur, 19. júl 2003

Að labba upp á fjall og borða gamlar samlokur

Vaknaði úrillur eftir of lítinn svefn klukkan ~7 og reyndi svo til hálf 9 af veikum mætti að sofa meira. Það var til lítils og á endanum fór ég framúr og smurði mitt nesti fyrir daginn. Klukkan var 9 þegar ég var svo kominn á Bárugötuna að hitta Fiffa og Drífu. Planið var, eins og áður hefur verið sagt frá, að ganga á Botnsúlur í Hvalfirði.

Botnsúlur eru sérkennilegt fjall (fjöll). Svo virðist sem einhvern tíman hafi verið þarna stórt virkt eldfjall sem er nú löngu kulnað. Nú standa eftir einir fimm tindar en engin miðja á milli þeirra. Súlurnar eru Syðstasúla, Háasúla, Miðsúla, Vestursúla, og ónefndur tindur. Hæst er Syðstasúla, 1095 metrar, aðeins örfáum metrum hærri en Vestursúla, en á hana er gengið frá Þingvöllum. Af Vestursúlu er rómað útsýni og átti þar að "sjást til 17 kirkna" samkvæmt einhverri heimild.

Við lögðum af stað gangandi klukkan 11 en til þess að komast að fjallinu þarf fyrst að ganga nokkurn spöl eftir Leggjabrjóti í átt að Þingvöllum. Ég er vanari því að komast akandi að fjallsrótum en ég er ekki frá því að það sé jafnvel betra að fá smá göngu á jafnsléttu fyrir og eftir. Við gengum semsé í stutta stund eftir Leggjabrjóti og þegar komið var að fjallinu var stefnt upp hrygg nokkurn og gengið upp í móti uns komið var á tind Vestursúlu. Það er ekkert verið að ýkja þetta með útsýnið‼

Ferðin upp fjallið var gríðarlega erfið af því að það var svo heitt. Fljótlega var ég búinn að rífa af mér flest föt og var samt alveg að grillast í hlíðinni. Svitinn lak af mér og allir draumar mínir um að forðast sólbrunna urðu að engu því fljótlega varð ég rauður og vesæll eins og karfi á þurru landi.

Í stað þess að labba sömu leið til baka ákváðum við að ganga niður fjallið norðanmegin og taka þar með hring í kringum ónefnda tindinn. Það reyndist alveg ótrúlega miklu lengri vegalengd en við höfðum reiknað með (og heimildir okkar sögðu til um) og við vorum alveg að þrotum komin þegar við náðum loksins niður í bíl um klukkan 9. Ég er semsé enn og aftur þreittur og rauður… en þetta var geeeeeðveikur dagur! =)


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar