föstudagur, 18. júl 2003

Ferðamátinn

Ég fríkaði út og ákvað að það væri sniðug hugmynd að hjóla í áðurnefnt samkvæmi; úr Grafarvogi niður á Kaplaskjólsveg. Ég sem var einmitt að ná í hjólið mitt úr bænum í gær. Auðvitað er maður ofboðslega sveittur eftir að hafa hjólað þetta svo að ég stoppaði í Vesturbæjarlauginni og synti smá áður en ég lét sjá mig.

Þetta þótti mér það sniðugt og vel heppnað plan að ég ætla að framkvæma það mun oftar. Ég kemst í betra form, leiðar minnar, þarf ekki að skipta við SVR (sem mér er illa við), og fæ smá private time (sem mér er mjög mikilvægt).

Ef þið sjáið pönk-hippa með bakpoka, á ryðguðu gulu fjallahjóli, þeysast um götur höfuðborgarinnar… endilega vinkið mér! ;-)


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar