Félagsfrægð
Fyrir utan símaruglið var þetta fínn dagur. Ég hitti Ingó í hádeginu og gaufaðist með honum fram að kvöldmat. Hann sýndi mér Rustboy og útskýrði fyrir mér allskonar dót um þrívíddargrafík sem mér þótt forvitnilegt að læra. Mér finnst mest gaman að læra nýja hluti frá fólki sem hefur brennandi áhuga á þeim. Oftast lærir maður reyndar bara einhverja obskúr hluti sem maður hefur engin not fyrir… en skemmtilega ónothæfa hluti!
Addi Pu sótti mig í kotru eftir kvöldmat. Við spiluðum nokkra leiki og vorum á að giska bara nokkuð jafnir (við töldum ekki í kvöld). Það eru óvenjuleg úrslit því að venjulega er ég gersigraður. Í kvöld var ég hins vegar barasta nokkuð heppinn… Tja, það hjálpaði víst líka að Addi var að spila langt undir getu. Hann var þó farinn að hitna undir lokin og svona eftirá að hyggja er ég viss um að ég slapp bara frekar vel. =)
