20 tonn af arseniki
Eftir erfiðan dag við að gera ekki neitt fór ég og hitti Ingó á heimili foreldra hans í vesturbænum. Gott betur því mér var meira að segja óvænt boðið í kvöldmat. Hann sagði alveg frábærar sögur af ævintýrum sínum í Þýskalandi svo og hrikalega (en fyndna) sögu af einhverjum 20 tonnum af arseniki sem þvældust um Reykjavíkurborg.
Ég held satt að segja að pabbi hans hafi með frábærri umræðustjórn við matarborðið létt þungu fargi af skapi mínu. Ég er nefnilega búinn að vera meira en lítið skapvondur síðustu daga vegna þess að mig klæjar skelfilega undan sólbruna síðasta laugardags.
Kvalitítæm okkar Ingólfs fór aðallega í umræður um nördaskap hvors annars. Hann sýndi mér þrívíddar nördaskapinn sinn og svo lögðum við grunninn að litlu vefkerfi sem hann langar í (og ég ætla að gera). Hann langar að endurskipuleggja heimasíðuna sína, eitthvað sem ég er alveg kátur að fá að grúska í, en hvernig er best að gera það er svo annað vandamál.
Hannes mætti svo til okkar aðeins seinna um kvöldið og við veltum meira fyrir okkur vefmálum en hann er búinn að vera að agitera fyrir betra galleríi í nokkurn tíma… Jæja, ég get víst ekki lengur sagt að ég hafi ekkert að gera, verst bara að þetta setur ekki salt í grautinn. :-/

3 ummææli við “20 tonn af arseniki”
síðan þín er fín!
punkH skrifaði 26.7.2003 14:31
hvaða djöfulsins tao - bleh er þetta borgar? viltu ekki bara fara að chilla með guðjóni bergmann, or something! svo finnst mér bara að þú getir sett linkinn minn inn aftur, ef hann sé þá linkur!!!!!
helgfríður skrifaði 26.7.2003 14:36
Takk, en ekki dissa taoið. Það er sjálfsagt að linka á mitt fólk ef það er að blogga en ég vil ekki hafa dauða linka á síðunni minni. Þú verður að vera dugleg að skrifa til að fá að vera með... ;-)
Borgar skrifaði 26.7.2003 14:59