miðvikudagur, 25. jún 2003

Tröllafoss & Þingvellir

Fór með múmíunni í stuttan rúnt um nærsveitir. Við röltum upp að Tröllafossi í mosfellssveit og keyrðum svo út að Þingvöllum. Þar var fátt að sjá annað en túrista svo að við nenntum ekki að hanga þar lengi og fórum og átum kaffi á Selfossi. Þá var haldið í bæinn með stutta viðkomu á plöntusölu einhverri í Hveragerði.

Á Þingvöllum veltum við (aðallega ég samt) fyrir okkur hvers vegna við viljum frekar kalla öxi exi. Mér sýnist íslendingar hafa hljóðvarpað orðinu bara algerlega. "Afkringing sérhljóðs" sýnist mér þetta vera kallað. Ég þarf að temja mér það að tala um öxi og öxar það er miklu flottara!

Á Selfossi keypti ég mér líka nýja strengi í gítarinn. Planið er að komast aftur í form svo að maður geti haldið vöku fyrir öðru fólki á tjaldstæðum víðsvegar um landið. Ég er orðinn ansi ryðgaður í spilinu en er að vona að þetta sé eins og að læra að hjóla…


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings