sunnudagur, 29. jún 2003

Snæfellsnes

Fór á Snæfellsnes um helgina með Hannesi og Adda Pu. Af því að við drengir vorum bara þrír, og allir klikkaðir, var prógrammið mun stífara en ella. Við tjölduðum og tókum hlutunum rólega á föstudagskvöldinu, smá bjór og spjall bara. Svo var aftur vaknað laugardaginn og labbað upp á jökulinn leyndardómsfulla. Sem var, ótrúlega, bæði heitt og kalt í einu. Við Hannes sólbrunnum lítillega, ekkert alvarlega, við erum bara með rétt annars stigs puru.

Vildi ég að það hefði verið betra skyggni á jöklinum en það var því miður ekki hægt að sjá til Reykjavíkur. Í alla staði var þetta frábær göngutúr og einstaklega gaman að renna sér niður af tindinum (sem stendur brattur upp úr topsvæði jökulsins). Af Snæfellsjökli var haldið suður á Hellnar þar sem við fengum bestu fiskisúpu veraldar (1000kr skammturinn). Mér var auðvitað ekki treystandi fyrir súpunni - ég át hana bara.

Á Hellnum fundum við auman lítinn æðarunga fastan í klettabriminu (þeas. lokaðan milli kletta). Addi þurfti lítið að gera annað en að beygja sig eftir greyinu og taka hann upp í lófann og sleppa honum svo aftur utan við fjöruklettana. Við vorum sannfærðir um að hann hefði amk. betri séns þar, en mögulega vorum við bara að fóðra múkkann.

Svo fóru að koma vatnsdropar úr loftinu. Það var eitthvað sem, samkvæmt háskólamenntuðum veðurfræðingum okkar íslendinga, átti bara hreint ekkert að vera að gerast. Mér varð það ljóst á þeim tímapunkti í lífi mínu að blind dúfa væri sennilega betri í að spá fyrir veðrinu en hyskið á veðursofu íslands. Já, ég er bitur!

Hvað um það, við létum regn ekki stöðva okkur og skoðuðum Bárðarlaug, Dritvík, Tröllakirkju, Djúpalónsströnd, Sönghelli og hvað þetta allt heitir þarna… Allt þar til mál var að grilla, drekka og láta fara vel um sig (þeas. vera þurr að utan en blautur að innan).

Dagurinn í dag fór svo í tiltekt, grandskoðun á Rauðafellsgjá, ölkeldusund á Lísuhóli (ég hef sérstakan áhuga á ölkeldum Íslands) og svo umferðartregðuna á heimleiðinni.

Ég er sem sagt þreyttur og brenndur, blautur en sáttur eftir helgina.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings