Rassmus
Ég fór upp á leikvöll með Arnóri (littla frænda og) vini mínum. Við fórum í Eina Krónu og hann kenndi mér að fara í handahlaup. Það er gaman að vera lítill strákur en ég er samt meira fyrir að vera fullorðinn.
Á leikvellinum hitti ég svo undarlega pedophílíska köttinn, Rassmus, sem virtist vera kelnasti köttur í algeiminum. Hann kom bara röltandi í mestu yfirvegun inní 6 krakka hjörð, hlammaði sér niður á jörðina og leyfði krökkunum að tuskast með sig eins og þeim langaði.
Allir krakkarnir þekktu Rassmus, þó svo að þau væru ekki sammála í fyrstu hvort þetta var hann, af því að "Rassmus er með ól". Ég var ekki fyrr búinn að taka hann upp en hann var farinn að mala og það þrátt fyrir að það væri verið að strjúka honum öfugt af litlum sveittum höndum.
Ótrúlegur kontrastur við okkar kött sem varla leyfir mér að snerta sig, en á það svosem ekki við um allt of mörg kvendýr?
