Flam-Ingó
Það er til "gælunafn" á nafninu mínu sem ég þoli illa að heyra. Um það bil það eina sem ég kref vini mína um er að þeir noti það ekki eða a.m.k. ekki í návist minni. Ingólfur (fljótlega að verða fyrrverandi-) vinur minn heldur að það sé húmor að nota þetta á mig í þeim tilgangi að pirra mig. Málið er auðvitað að þótt þetta sé húmor fyrir honum verð ég í alvörunni mjög pirraður, reiður og bara alls ekkert tilbúinn til að hafa húmor fyrir einu né neinu.
Þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir um að hætta að hefur Ingólfur ekki látið segjast. Ég hef árangurslaust reynt að koma honum í skilning um að mér finnist þetta bara hreint ekkert fyndið.
Það er sagt að sósijópatar geti bara lært í gegnum einhverskonar sársauka eða fráreitismeðferð. Ég hef látið á það reyna og er búinn að gera heimasíðu Ingólfs bleika.
