Esja & Grill
Ég var ræstur í hádeginu af Hannesi sem hrópaði á mig í gegnum þráðleysuna "Þú, Esja, núna." Hvernig átti ég mögulega að neita því? Það er bara ekki hægt. Svo að ég hundskaðist framúr beddanum og hafði mig til á þeim stutta tíma sem ég hafði þangað til hann sótti mig. Doddi og Dabby mættu svo rétt á eftir okkur inná bílastæðin við þverfellshornið og við strunsuðum upp.
Það kom mér skemmtilega á óvart hvað ég átti auðvelt með þetta. Ég er búinn að vera eitthvað hálfslappur undanfarið, t.d. með hitavellu og beinverki í gær. Samt var ég alveg sprækastur af okkur fjórum, rétt eins og lamb á fögrum sumardagi. Ég er greinilega kominn í mun betra form en ég hélt!
Eftir prílið fórum við svo heim til Hannesar þar sem við grilluðum okkur dýrahold og töluðum einhverja vitleysu fram á háttatíma. Við Hannes erum heitir fyrir því að ganga á fjall (a.m.k.) einu sinni í viku í sumar. Ég er sjálfur efins um að það verði framkvæmt en það sakar varla að stefna á það?
