mánudagur, 2. jún 2003

Bæjarferð að morgni

Vaknaði í vesturbænum í morgun. Ég nýtti tækifærið og rölti niðrí miðbæ, upp laugarveginn og tók svo strætisvagn heim. Mér finnst alltaf svolítið gaman að skoða bæinn svona einn í rólegheitum, þá tekur maður betur eftir furðulegum hlutum sem fyrir augu ber. Ég glotti með sjálfum mér þegar ég labbaði framhjá gluggum merktum ónefndu fyrirtæki, en undirtitillinn var "internetfyrirtæki" - jahá?

Fór í fullt af búðum án þess þó að kaupa mikið. Þó svo að ég sæi margt flott dót var samt fátt af því þannig að það mundi veita mér meiri ánægju þegar það væri komið heim til mín. Þó verslaði ég mér einn eina þýðingu á Tao Te Ching í bókabúð Máls og Menningar. Þar rak ég líka augun í skemmtilega bók, Blogging eftir Biz Stone. Hvorki meira né minna en 300 blaðsíður af óþarfa vitneskju fyrir fólk með bráðaóöryggiskend. Mér finnst þetta þó allavega húmor.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar