sunnudagur, 29. jún 2003
Fór á Snæfellsnes um helgina með Hannesi og Adda Pu. Af því að við drengir vorum bara þrír, og allir klikkaðir, var prógrammið mun stífara en ella. Við tjölduðum og tókum hlutunum rólega á föstudagskvöldinu, smá bjór og spjall bara. Svo var aftur vaknað laugardaginn og labbað upp á jökulinn leyndardómsfulla. Sem var, ótrúlega, bæði [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:54
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 25. jún 2003
Fór með múmíunni í stuttan rúnt um nærsveitir. Við röltum upp að Tröllafossi í mosfellssveit og keyrðum svo út að Þingvöllum. Þar var fátt að sjá annað en túrista svo að við nenntum ekki að hanga þar lengi og fórum og átum kaffi á Selfossi. Þá var haldið í bæinn með stutta viðkomu á plöntusölu [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:10
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 23. jún 2003
Ég er búinn að vera að taka til í geymslunni í dag. Það standa nefnilega yfir endurskipulagningardagar hér á heimilinu. Það er svolítið gaman að gramsa í draslinu, ég er búinn að finna ýmislegt sem ég annað hvort hélt að ég væri búinn að týna eða var búinn að gleyma að ég hefði nokkurn tímann [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:10
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 22. jún 2003
Ég var ræstur í hádeginu af Hannesi sem hrópaði á mig í gegnum þráðleysuna "Þú, Esja, núna." Hvernig átti ég mögulega að neita því? Það er bara ekki hægt. Svo að ég hundskaðist framúr beddanum og hafði mig til á þeim stutta tíma sem ég hafði þangað til hann sótti mig. Doddi og Dabby mættu [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:10
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 19. jún 2003
Ég fór upp á leikvöll með Arnóri (littla frænda og) vini mínum. Við fórum í Eina Krónu og hann kenndi mér að fara í handahlaup. Það er gaman að vera lítill strákur en ég er samt meira fyrir að vera fullorðinn.
Á leikvellinum hitti ég svo undarlega pedophílíska köttinn, Rassmus, sem virtist vera kelnasti köttur í [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:37
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 17. jún 2003
Það er til "gælunafn" á nafninu mínu sem ég þoli illa að heyra. Um það bil það eina sem ég kref vini mína um er að þeir noti það ekki eða a.m.k. ekki í návist minni. Ingólfur (fljótlega að verða fyrrverandi-) vinur minn heldur að það sé húmor að nota þetta á mig í þeim [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:40
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 16. jún 2003
Kisan okkar, Lísa á afmæli í dag. Hún er einn furðulegasti köttur sem ég hef átt búið með og ég hef átt þekkt þá ófáa. Það er þó kannski ekkert undarlegt að hún sé skrítin svona miðað við…
Ég flutti í kjallaraíbúð í skipasundi á sínum tíma með þáverandi sambýliskonu minni og bröndóttu læðunni okkar. Við [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:36
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 12. jún 2003
Kristleifur vinur minn lét út úr sér þennan fallega frasa þegar ég spurði hann hvers vegna að hann hefði áhuga og kunnáttu á íslensku:
Já, sko, ég er nefnilega fæddur með íslenska tungu.
Ég vil koma á framfæri ósk minni um að kynnast fólki með brennandi áhuga á íslensku. Einkum og sér í lagi íslenskunemum og öðrum [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:34
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 10. jún 2003
Ég fór með hyskinu upp í Þórsmörk snemma á laugardag. Planið var að eyða laugardeginum í ferðalagið, samveru og grill, fara svo að sofa og ganga Fimmvörðuhálsinn á sunnudeginum.
Strax á laugardaginn var ljóst að við yrðum ekki í besta veðri ever þarna. Hvað um það, það var í lagi í mörkinni og við fórum í [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:34
.
Höfundur:
Borgar .
Var að koma heim úr stórkostlegri útivistarferð (sem ég skrifa hugsanlega um á morgun). Ákvað svona rétt aðeins að athuga póstinn minn áður en ég færi í rúmið… og ákvað svo fljótlega að lesa hann bara í fyrramálið! :-S
Lesa áfram...
Sent klukkan:
0:07
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 6. jún 2003
Þá er maður búinn að pakka öllu útivistardraslinu saman og senda það út á Hvolsvöll. Þangað verður haldið í fyrramálið þar sem ég sameinast draslinu og held í rigninguna austur í Þórsmörk. Það er ráðgert að ganga Fimmvörðuhálsinn á sunnudeginum og koma svo aftur heim á mánudag.
Sennilega mun ég verða meir og aumur eftir ferðina [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:02
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 2. jún 2003
Vaknaði í vesturbænum í morgun. Ég nýtti tækifærið og rölti niðrí miðbæ, upp laugarveginn og tók svo strætisvagn heim. Mér finnst alltaf svolítið gaman að skoða bæinn svona einn í rólegheitum, þá tekur maður betur eftir furðulegum hlutum sem fyrir augu ber. Ég glotti með sjálfum mér þegar ég labbaði framhjá gluggum merktum ónefndu fyrirtæki, [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:52
.
Höfundur:
Borgar .