laugardagur, 3. maí 2003

Sæludagar

Lífið er svo sannarlega búið að vera dans á rósum síðustu daga. Á miðvikudaginn (30.) krúsaði ég með Hannesi um Snæfellsnesið og skoðaði það sem þar var að sjá. Svo var farið í aðra ferð strax daginn eftir enda ekki hægt að láta jeppann standa ónotaðan (Hannes hefur öfund mína alla). Mín fyrsta maí barátta var fólgin í því að keyra upp á hálendi og njóta dýrðarinnar. Skítt með verkalýðinn, hann sér bara um sig sjálfur ;-)

Svo var mér var boðið í mat til Svenna og Helgu í gærkvöldi og þar var ekkert verið að skera við nögl. Svenninn hafði fjárfest í flösku af þessu líka óhugnarlega góða rauðvíni… og ný tegund bætist á listann minn yfir 10,000 bestu rauðvínin! =)


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar