RSS í u-beygju
Ég var að fá fyrstu auglýsinguna í gegnum RSS áðan. Þetta er mér frekar mikið áhyggjuefni (ekki að ég sé neitt að fara að missa svefn). Fyrir mér hefur RSS staðið hingað til fyrir allt sem er sniðugt og gott við upplýsingamiðlun á netinu en óumbeðnar auglýsingar eru hins vegar einmitt u.þ.b. það eina sem mér finnst rotið á netinu/vefnum.
Jæja, svosem lítið sem ég get gert í þessu annað en að fussa og unsubscriba strauminn…
