Femínistafélagið
Ég held ég þurfi svosem ekki að hafa um þetta mörg orð enda Unnur, Már og Erna öll búin að tjá mína afstöðu betur en ég gæti sjálfur. Ég skráður á listann en hef verið hikandi við að ganga í félagið. Eftir atburði og ummæli síðustu daga hefur mér það orðið ljóst að ef að femínisti þýðir að vera hluti af einhverjum æstum múg… þá er ég alveg greinilega ekki femínisti! Ég mun halda áfram að fylgjast með, því að mig langar að hjálpa til við að laga samfélagið, en ég veit ekki hvort ég á eftir að þora að ganga í militant femínistafélag. Siðferðislegt réttlæti verður ekki áunnið með slagsmálum.
