Dagur til spillis...
Júróvisjónpartí og afmæli hjá Dodda og Dabby í gærkvöldi. Ég fórnaði allri skynsemi, hellti í mig áfengi og skemmti mér konunglega. Sé auðvitað eftir öllu í dag enda hef ég ekki verið svona þunnur áður á ævinni.
Ég skreið framúr seinnipartinn í dag og er síðan búinn að eyða restinni af vökutímanum í að vorkenna sjálfum mér. Ég gat ekki unnið á tölvuna, hvað þá staðið í lappirnar svo að ég er búinn að vera að horfa á animal-planet í allan dag enda eina sjónvarpsefnið sem ég réði við. Heimurinn hætti svo loks að snúast stuttu eftir miðnætti og ég ákvað að vera tölvugaurinn í smá stund, ekki mikið sem ég réði við að gera. En núna… núna sofa… =_=
