Undraland rís úr öskunni
Setti vefþjóninn upp aftur í gær + gærkvöld + nótt. Gerði mér lítið fyrir og massaði saman nýrri hraðvirkari vél og setti kerfið upp á nýju fínu græjunni. Allur prósessinn tók ekki nema ca. 16 tíma en ég þurfti líka að smíða nýju vélina, færa gögnin yfir, vírushreinsa gömlu vélina (sem er það sem hrinti mér út í þetta til að byrja með) og setja upp öll forrit… hrikalegur andskoti en manni líður betur eftir á.
