miðvikudagur, 30. apr 2003

Súri gaurinn

Ég er tók þá miður skynsamlegu ákvörðun áðan að taka mér hlé frá Rassgator og klára að gera nýjan MSN-Amp (sá gamli virkar ekki með Messenger 5.0). Hins vegar er ég búinn að eyða nokkrum tímum í að leysa vandamál á rangan hátt - alltaf pirrandi þegar "lausnin" virkar ekki.

Vandamálið sem ég er að berjast við er að Microsoft, af alþekktri visku sinni, ákváðu að láta Messenger 5 keyra einungis á nýju API og droppa gamla interfeisinu. Allt gott með það nema hvað nýi APInn hefur ekki útbúnað til þess að breyta nikkinu þínu (sem er uþb. það eina sem ég vil nota þetta í - aaarrgh!). Svo ég prufaði þá heimskulegu leið að fara í gegnum Windows API. Það virkar… en samt ekki. Ég fæ ljótt gluggaflicker og svo vill þetta ekki uppfæra nikkið þegar glugginn er uppi í systray. Sem gerir þetta algerlega ónothæft forrit. Ég sem eyddi klukkutímum í þetta API rugl. =(

Það sem ég hef næst á dagskrá er að prufa að fara bara beint í serverinn. Það virkar alveg pottþétt, er sennilega minni forritunarvinna og hefur þann kost að fara framhjá nickname reglum. Svo af hverju gerði ég það ekki bara strax? Vegna þess að ég vildi helst láta clientinn sjálfan sjá um samskipti við serverinn af því að hann:

  1. er nú þegar með opna tengingu við server (sem væri gaman að sjá hvort að ég get nýtt mér?),
  2. stendur í öllu proxy og alternative port veseninu sem ég nenni ekki að gera og,
  3. er ágætis skotmark fyrir svona brútal hack tilraunir ;-)

Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings