sunnudagur, 23. mar 2003

Maður fer bara hjá sér...

Þau standa inní eldhúsi og keppast við að mæra þig hvíslaði vinkona mín að mér í samkvæmi nýlega. Ég veit ekki hvað ég er að gera undanfarið en það er alveg að virka! Mér finnst ég ekki hafa verið að taka upp á neinu nýju en það er eins og allir í kringum mig séu að keppast við að ausa mig hrósi.

Í grein morgunblaðsins um bloggið sem kom núna um helgina er ég titlaður tölvusnillingur, eitthvað sem ég mundi fara varlega í að kalla mig sjálfur… meira svona circusfrík.

Megnið af þeim aðdáendapósti sem ég fæ er vegna tónlistar. Ég hef verið að vinna við það í nokkur ár að koma gamalli tölvuleikjatónlist í midiform og svo hef ég aðeins verið að fikta við rímíx og að færa lög af einum hljóðkubb yfir á annan o.s.frv. Ég er reyndar ekki búinn að fá aðdáendabréf í heila fimm daga. :-(

Málið er að þetta er pínu að fríka mig út. Ég er svo hræddur um að ég fari að trúa þessu öllu saman. En endilega ekki hætta, því mér finnst mjög gott að heyra talað fallega um mig.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings