sunnudagur, 30. mar 2003

Hvað sjúkir menn gjöra...

Veruleikafirringin verður mér að falli enn einu sinni. Ég er kominn með þessa bévítans kvefpest sem er að ganga. Það er svona þegar maður heldur að sumarið sé að koma og fer að fækka fötum algerlega úr takti við veðurfar. Ég vildi að ég væri vel gefinn eða byggi á Jamaica. Ég er ekkert að krefja lífið um mikið - bara annað hvort!

Þetta eru þó góðar fréttir fyrir flesta aðra því að þegar svona stendur á (haha) þá er ég svo duglegur að skrifa ókeypis forrit. Núna er það einfaldur RSS fréttalesari. Ég er búinn að vera að leita mér að góðri svoleiðis græju í lengri tíma án þess að finna neitt af viti. Þetta endar alltaf eins… ég geri hlutina sjálfur. :-/


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings