sunnudagur, 23. mar 2003

Breytingar

Eins og sést er ég einn einu sinni búinn að breyta kerfinu mínu. Mig hefur stundum langað til þess að skrifa hluti inn í þetta sem ég var samt ekki til búinn til þess að deila með allri þjóðinni. Núna get ég það í læstum færslum.

Ég velti því fyrir mér þegar ég var að fara yfir kóðann hvort að ég ætti ekki að láta commentin fjúka. Þetta commenta dót er eitthvað sem ég setti inn fyrir guðmávitahvað löngu síðan og hefur aldrei nokkurn tíman getið af sér viðbrögð sem skipta neinu máli.

Ég er reyndar þeirrar skoðunar að commentakerfi séu ekki sniðug fyrir bloggsíður. Í flestum tilvikum verður ritskoðunin (sem penninn beitir sjálfan sig) mun harðari því oftast reynir blöggarinn að þóknast lesendum sínum. Bloggið litast af lesendunum og við fáum ekki eins tæra mynd af höfundi.

Ég veit aðeins um eina síðu þar sem commentakerfi er að virka og þar virkar það líka mjög vel - þrátt fyrir að vera ónotendavænt… eða… hugsanlega þess vegna?


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar