Best í heimi!
Unnur er klár stelpa sem ég verð seint þreyttur á að dásama. Mér finnst bara að allir eigi að lesa það sem hún skrifar! Hún segir að það eina sem sé betra en kynlíf og súkkulaði sé að kaupa bækur. Þetta er eitthvað sem ég get verið nokkuð sammála enda er ég (of) duglegur að eyða í bækur.
Reyndar er nýjasta hjá mér að versla mér DVD myndir af miklum eldmóð og munaði mjög litlu að ég missti stjórn á mér í versluninni 2001 í gær.
Annars var ánægja helgarinnar falin í því að ég fann Yoko Kanno dót sem ég átti ekki. Að finna ný lög sem maður vissi ekki að væru til með uppáhalds flytjandanum sínum er líka ákaflega ánægjulegt - einkum og sér í lagi ef það eru extra góð lög.
