Analblaster.com
Ég var aðeins að spjalla við Helgu á MSN og segja gamlan brandara í milljónasta skipti: Þegar hún benti mér á síðu með fullt af desktop veggfóðri sagðist ég fá mín á analblasters.com.
Ég er búinn að vera að nota analblaster.com í c.a. ár sem svona stereotýpíska klám-perversjón lénið. Það hvarlaði allt í einu að mér að það væri kannski góð hugmynd að athuga hvort þetta lén væri til. Í einni angistarfullri andrá sá ég fyrir mér vini mína að athuga hvað væri að finna á þessari slóð sem ég vísa alltaf í… og að þar væri eitthvað afskaplega sjúkt! Það kom í ljós að þar er nákvæmlega ekki neitt… ennþá…
Ég þarf að fara að uppfæra skráninguna á undraland.com og ég er að hugsa um að kaupa spottið í leiðinni.
Uppfærsla: Ég keypti aldrei lénið því að einhver andskoti hafði neglt það á undan mér. Ég hef lénabraskara grunaða um að mónítora DNS þjóna og mun fara varlegar með svona hluti í framtíðinni.
