Tími til kominn..
Eins leiðinlegt og það er að vera veikur er ekki laust við að maður komi fullt af hlutum í verk sem hafa verið útundan. Aðallega eru þetta svona leiðinda lagfæringar sem hægt er að framkvæma í hvaða ástandi sem er, t.d. að zippa fælum og henda út á server, teikna nokkur icon, ríinstalla windows.
Ég vil frekar vera að eyða tímanum mínum í að leysa úr alvöru vandamálum, en það kemur að því að maður verður að klára hitt draslið. Reyndar er ég ekki bara búinn að vera að bora í nefið heldur er ég líka búinn að klára nokkra alvöru hluti, t.d. nýja útgáfu af Sokoban og svo græjaði ég nýtt útlit á þessa síðu. Veit samt ekki hvenær ég nenni að setja upp.
