föstudagur, 21. feb 2003

Samlokur

Stefán Páls spyr hvers vegna þríhyrndar samlokur bragðist betur en ferhyndar. Svarið er einfalt: Feng shui! Því færri horn, því betra. Annars flæðir bara allt Chi úr matnum. Til dæmis er kringlóttur matur miklu betri en hyrndur.

Það er viðurkennd staðreynd að pizzur og hamborgarar eru betri en samlokur, jafnvel þríhyrndar.

Sumir munu halda því fram við ykkur að þetta hafi eitthvað með bragðskyn, krydd, hráefni og annað slíkt rugl að gera. Hlustið ekki á svoleiðis vitleysu. Allir sem hugsa meira en hálfa hugsun vita að þetta snýst allt um flæði Chi orkunar um matinn.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings