miðvikudagur, 19. feb 2003

Líf mitt á rítalíni (vildi ég)

Ekki að ég sé raunverulega farinn að taka rítalín, en ég er alveg á milljón að reyna að ná upp glataðan tíma eftir veikindin. Missti út fullt af vinnu og þarf að ná upp í hvelli svo að ég fari ekki á hausinn.

Þá er bara eitt að gera: vélrita þangað til að blæðir úr fingrunum með japanskt smástelpupönk í eyrunum. Í augnablikinu eru það kátu stelpurnar í Dicot sem halda uppi fjörinu og fylla mig af athafnaþrá. Við sjáum svo hvað það endist…

Verð að væla aðeins yfir því hvað Eurovision var mikill skandall. Var eitthvað þarna sem gekk upp? Guð hjálpi okkur ef við lendum í því að halda þetta!

Eftir á að hyggja er lagið með Eivöru það eina sem eitthvað er að virka.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings