sunnudagur, 9. feb 2003

Júróvisíón

Eins og fram hefur komið hér áður er ég búinn að vera veikur síðustu daga. Þess vegna hef ég því verið heima öll kvöld í vikunni og náð að sjá/heyra öll Eurovision lögin sem keppa um að fá að fara út fyrir Íslands hönd í ár. Ég get ekki sagt að eitt einasta lag þarna sé lag sem ég mundi persónulega setja í spilarann.

Af þessum 15 lögum sem til greina koma eru aðeins tvö sem ég mundi kalla grípandi; Segðu mér eftir Hallgrím Óskarsson (flutt af Birgittu Haukdal) og Með þér eftir Svein R. Sigurðsson. Svo eru þarna líka lagið Í Nótt flutt af Eivöru Páls sem hiklaust verður að teljast best flutta lagið þó það sé langt frá því að vera grípandi.

Það kæmi mér síst á óvart að íslendingar veldu eitthvað með noveltívaljú og Írafár, Botnleðja eða Rúnar Júl færu út. Málið er bara að Rúnar gamli er bara evrópubúum alls ekki jafn kær og okkur og það sem virkar á noveltíinu hérna heima er ekkert endilega að fara að gera sig útí Riga.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar