Best of Borgar
Fékk símtal frá blaðamanni morgunblaðsins áðan og gat ausið úr vanþekkingarbrunninum í örugglega lengri tíma en blaðamaður átti von á. Ég kem ekki til með að verða með virtustu viðmælendum landsins
með þessu áframhaldi.
Í alla staði vakti samtalið mig til umhugsunar um ýmis mál sem tengjast bloggi. T.d. bloggið sem verkfæri lýðræðis og hver framtíð fyrirbærisins er. Hugsanlega skrifa ég eitthvað um það á næstu dögum, eða kannski ekki.
Það besta við þetta símtal var að mér datt í hug nýr fídus á kerfið. Að merkja við sínar uppáhalds pósta svo að hægt sé að lista út einskonar digest eða best of. Eitthvað sem er kúl fyrir nýja lesendur.
