föstudagur, 21. feb 2003
Stefán Páls spyr hvers vegna þríhyrndar samlokur bragðist betur en ferhyndar. Svarið er einfalt: Feng shui! Því færri horn, því betra. Annars flæðir bara allt Chi úr matnum. Til dæmis er kringlóttur matur miklu betri en hyrndur.
Það er viðurkennd staðreynd að pizzur og hamborgarar eru betri en samlokur, jafnvel þríhyrndar.
Sumir munu halda því fram við [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
20:48
.
Höfundur:
Borgar .
Þrýstingur almúgans er gríðarlegur og ég sé mig tilneyddan að færa lesendum mínum skoðanir mínar á bloggi.
Flestar þær síður sem ég les að staðaldri eru síður sem hafa svarkerfi (eins og mín hefur). Ég hef tekið efir því að svarkerfi á bloggsíðum virðist drepa að einhverju leyti áræðni penna til að tjá skoðanir sínar. Þörf [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
20:19
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 20. feb 2003
Fékk símtal frá blaðamanni morgunblaðsins áðan og gat ausið úr vanþekkingarbrunninum í örugglega lengri tíma en blaðamaður átti von á. Ég kem ekki til með að verða með virtustu viðmælendum landsins með þessu áframhaldi.
Í alla staði vakti samtalið mig til umhugsunar um ýmis mál sem tengjast bloggi. T.d. bloggið sem verkfæri lýðræðis og hver framtíð [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
16:16
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 19. feb 2003
Ekki að ég sé raunverulega farinn að taka rítalín, en ég er alveg á milljón að reyna að ná upp glataðan tíma eftir veikindin. Missti út fullt af vinnu og þarf að ná upp í hvelli svo að ég fari ekki á hausinn.
Þá er bara eitt að gera: vélrita þangað til að blæðir úr fingrunum [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:59
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 9. feb 2003
Eins og fram hefur komið hér áður er ég búinn að vera veikur síðustu daga. Þess vegna hef ég því verið heima öll kvöld í vikunni og náð að sjá/heyra öll Eurovision lögin sem keppa um að fá að fara út fyrir Íslands hönd í ár. Ég get ekki sagt að eitt einasta lag þarna [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:34
.
Höfundur:
Borgar .
Eins leiðinlegt og það er að vera veikur er ekki laust við að maður komi fullt af hlutum í verk sem hafa verið útundan. Aðallega eru þetta svona leiðinda lagfæringar sem hægt er að framkvæma í hvaða ástandi sem er, t.d. að zippa fælum og henda út á server, teikna nokkur icon, ríinstalla windows.
Ég vil [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
1:45
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 6. feb 2003
Það er fátt verra en að vera fárveikur heima nema þá kannski að vera með insomníu í ofanálag. Það er þó ljós í myrkrinu; Í dag fékk ég loksins nýju Yoko Kanno plötuna sem ég hef verið að bíða eftir. Ég hef lúmskan grun um að hún verði á rípít næstu daga… eða.. uh, nætur.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:14
.
Höfundur:
Borgar .
mánudagur, 3. feb 2003
Ég er akkúrat núna alveg furðulostinn. Þannig er að ég er að skrifa smá Java applet sem spilar mússík og er búinn að vera að vinna í því í allan dag. Þegar ég fékk svo loks draslið til að compæla þá virkaði það nánast rétt.
Nánast, vegna þess að spilunar-þráðurinn virðist ekki vilja deyja (það þýðir [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:55
.
Höfundur:
Borgar .