Nýr sími

Fór loksins og keypti mér nýjan síma í fyrradag - eitthvað sem er búið að dragast allt of lengi. Hann hefur ekki alveg alla þá virkni sem ég vildi en hann er léttari en ég bjóst við og hefur alveg hljómgæði langt framyfir gömlu Nokia dósina (svo var hann líka ódýr).
Eitt af því fyrsta sem ég fór að kanna eftir að ég fékk hann var WAP heimurinn sem er orðinn mun stærri en ég bjóst við. Þrátt fyrir að WAP sé alveg handónýtt sem upplýsingaveita er samt hægt að finna ýmislegt forvitnilegt. Eins og til dæmis þessa fínu mynd…
