Java dot-Net
Í stöðugri leit að nýjum hlutum til að eyða tíma í tók ég upp á því að læra nýtt forritunarmál, nefnilega Java. Java er eitthvað sem er búið að vera að þvælast fyrir mér í nokkur ár og ég hef aldrei nennt að skoða. Ég kann í alla staði ágætlega við málið og reikna sterklega með því að nota það slatta í framtíðinni.
Ég man ennþá eftir viðbrögðunum í forritunargeiranum þegar Sun gáfu þetta út. Spurðu margir hvort að þörf væri á enn einu helvítis forritunarmálinu, hvort það hefði ekki verið betra að object orienteita pascal, o.s.frv.
Ég er sjálfur mjög íhaldsamur þegar kemur að forritunarvenjum og verð að segja að enn og aftur sannar íhaldsemin gildi sitt nú þegar Microsoft eru að gefast upp á þessu dot-Net rugli sínu.
