Ég get svarið að það hreyfði sig!
Helgin var í boði Adda Pu. Gærkvöldið fór í smá húsvolgun í nýja plássinu hans. Ekkert partí - bara við félagarnir að sötra öl, spila kotru og spjalla. Svo í morgun (lesist: hádegi) ræsti drengurinn mig, keyrði með mig út í Heiðmörk og þrælaði mér yfir svæðið þvert og endilangt.
Það er orðið of langt síðan ég tók sæmilegan göngutúr en það kom mér samt vel á óvart hvað ég entist. Hélt ég. Þegar heim kom slokknaði algerlega á mér um leið og ég þiðnaði.
