Ég er nörd
Ég held að ég sé að versna bara í nördskunni minni ef eitthvað er. Nýjasta ruglið eru gömul demo endurgerð með Java. Ég er búinn að vera að fletta demo-scene síðum slatta undanfarið og svo virðist sem að retroismi sé eitthvað að verða hipp. Soundchip músík spiluð í sjónvarpinu og þessháttar. Ég er samt verulega efins um að ég sé eitthvað meðvitaður um tískustrauma.
