Borgar.net

— Jump to the navigation index

föstudagur, 10. jan 2003

Andvaka

Ég vil bara að það komi fram að ég er [[http://borgar.undraland.com/s/2003/01/09/23.34.57/|ekki enn]] farinn að sofa. Ég er þá búinn að vera vakandi núna í eina 38 tíma. Ég fór í morgun til læknis og fékk svefnlyf (fjúkk!). Gallinn var að ef ég hefði tekið það í hádeginu hefði sólarhringurinn farið í 100% rugl. Svo ég fór bara í klippingu í staðinn! =)

Já, og smá auglýsing: Ef þú ert myndarleg, greind og skemmtileg, þá áttu að fara á Kaffibarinn og hitta Krilla af því að þú ert kærastan hans! (Verði þér að góðu Krilli).

Published: 10. 1. 2003 23:34.