Greinasafn fyrir January, 2003

fimmtudagur, 30. jan 2003

Ég er nörd

Ég held að ég sé að versna bara í nördskunni minni ef eitthvað er. Nýjasta ruglið eru gömul demo endurgerð með Java. Ég er búinn að vera að fletta demo-scene síðum slatta undanfarið og svo virðist sem að retroismi sé eitthvað að verða hipp. Soundchip músík spiluð í sjónvarpinu og þessháttar. Ég er samt verulega [...] Lesa áfram...

mánudagur, 20. jan 2003

Ég get svarið að það hreyfði sig!

Helgin var í boði Adda Pu. Gærkvöldið fór í smá húsvolgun í nýja plássinu hans. Ekkert partí - bara við félagarnir að sötra öl, spila kotru og spjalla. Svo í morgun (lesist: hádegi) ræsti drengurinn mig, keyrði með mig út í Heiðmörk og þrælaði mér yfir svæðið þvert og endilangt. Það er orðið of langt síðan [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 16. jan 2003

Java dot-Net

Í stöðugri leit að nýjum hlutum til að eyða tíma í tók ég upp á því að læra nýtt forritunarmál, nefnilega Java. Java er eitthvað sem er búið að vera að þvælast fyrir mér í nokkur ár og ég hef aldrei nennt að skoða. Ég kann í alla staði ágætlega við málið og reikna sterklega [...] Lesa áfram...

föstudagur, 10. jan 2003

Andvaka

Ég vil bara að það komi fram að ég er ekki enn farinn að sofa. Ég er þá búinn að vera vakandi núna í eina 38 tíma. Ég fór í morgun til læknis og fékk svefnlyf (fjúkk!). Gallinn var að ef ég hefði tekið það í hádeginu hefði sólarhringurinn farið í 100% rugl. Svo ég [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 9. jan 2003

Reykingar

Ég veit ekki af hverju ég er ekki löngu hættur að reykja. Ég reyki nógu lítið til þess að geta einfaldlega hætt ef ég vildi. Ég virðist vera nógu lítið háður til þess að geta gleymt að reykja, jafnvel dögum saman. Þó svo ég sé sumpart orðinn leiður á því að fá nikótínsjokk í hvert einasta [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 8. jan 2003

Nýr sími

Fór loksins og keypti mér nýjan síma í fyrradag - eitthvað sem er búið að dragast allt of lengi. Hann hefur ekki alveg alla þá virkni sem ég vildi en hann er léttari en ég bjóst við og hefur alveg hljómgæði langt framyfir gömlu Nokia dósina (svo var hann líka ódýr). Eitt af því fyrsta sem [...] Lesa áfram...

Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar