sunnudagur, 15. des 2002

Jólaþjáningarnar hefjast fyrir alvöru...

Kringlan í gær og bærinn í dag því jólagjafaveiðarnar eru í fullum gangi. Kringlan var mjög svo óskemmtileg upplifun því að eftir 3 og hálfa mínútu í örtröðinni er ekki lengur nokkur möguleiki á því að koma að hálfri hugsun. Maður ráfar þarna um eins og uppvakningur þar til að það rennur loks upp fyrir manni að ekkert sé að gerast. Þá er mál að forða sér út og reyna að komast yfir áfallið.

Bærinn var betri með þetta… ekki of mikið af fólki. Hins vegar upplifir maður það besta sem íslenskt veðurfar hefur uppá að bjóða. Eftir að hafa þrammað fram og til bara á laugarveginum var mál að hætta. Við bræður orðnir þreyttir og ekki að fá neinar snilldar hugmyndir að gjöfum. Svo var okkur líka kalt á eyrunum.

Ég er farinn að örvænta, eftir tvo leiðangra okkar á þessi erfiðu mið höfum við haft upp úr krafsinu jafn margar gjafir. Ætli Smáralindin reynist betri eða á ég að gefast upp strax og gefa bara öllum notaða sokka?


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar