sunnudagur, 22. des 2002

Jólakakan

Eftir að hafa tekið almennilega á því í gærkvöldi og djammað fram undir morgun reis ég úr rekkju kengbeyglaður í dag og hóf jólastúss. Eins og glöggir lesendur mínir hafa tekið eftir er ég smám saman að breytast í eitthvað ofurjóladýr og er því að baka í dag! =)

Við bökum jólakökuna okkar á hverju ári, enda ómissandi þáttur í jóla-fitun, en hér er semsagt uppskriftin:

Hrærið duglega saman…

  • 2 dl Matarolía
  • 250 gr Sykur
  • 1/2 dl Ljóst síróp
  • 4 Egg

Siktið út í hræruna…

  • 350 gr Hveiti
  • 2 tsk Lyftiduft
  • 2 tsk Salt
  • 2 tsk Kanill
  • 1 tsk Muskat

Hellið svo út í þetta…

  • 2 dl Trópí
  • 250 gr Rúsínur
  • 300 gr Saxaðar döðlur (ég vil hafa þær frekar fínt saxaðar)
  • 400 gr Kokeilber (rauð eru flottust)
  • 100 gr Gróft hakkaðar heslihnetur

Svo er bara að baka gumsið við 150° hita í c.a. 65 mínútur (þið verðið sjálf að reikna út fyrir örbylgjuofnana ykkar). Mér finnst persónulega betra þegar hún er ekki of mikið bökuð og er svolítið drullukend ennþá, en hver hefur auðvitað sinn smekk.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings