Plís, nei, ekki meiri jól!...
Ég sit núna alveg búinn á því hérna heima eftir að hafa þeyst um allan bæinn með múmíunni. Markmiðið var auðvitað að kaupa meira af jólagjöfum. Allavega er ég alveg að gráti kominn eftir þessa meðferð í dag og velti fyrir mér hvers vegna ég sé að þessu yfirleitt. Ef við raunverulega vildum gleðja hvert annað mundum við koma okkur saman um að hætta þessu bannsetta rugli og eyða peningunum okkar í eitthvað gáfulegra en handklæði og DVD myndir.
Það er ekki það, ég verð sennilega mjög sáttur þegar ég sit mettur á aðfangadagskvöld og opna pakkana.
