mánudagur, 30. des 2002
Búið að vera brjálað stuð síðustu daga og ég búinn að þjóta úr einu í annað eins og býfluga á amfetamíni. Ég er búinn að sjá Hringadróttins., tapa á keilumóti, heimsækja vini og ættingja, borða eins og vannærður göltur… og síðast en ekki síst… er ég búinn að fara í áramótasvettið! Áfram ég!
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:56
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 22. des 2002
Eftir að hafa tekið almennilega á því í gærkvöldi og djammað fram undir morgun reis ég úr rekkju kengbeyglaður í dag og hóf jólastúss. Eins og glöggir lesendur mínir hafa tekið eftir er ég smám saman að breytast í eitthvað ofurjóladýr og er því að baka í dag! =)
Við bökum jólakökuna okkar á hverju ári, [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:19
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 19. des 2002
Ég sit núna alveg búinn á því hérna heima eftir að hafa þeyst um allan bæinn með múmíunni. Markmiðið var auðvitað að kaupa meira af jólagjöfum. Allavega er ég alveg að gráti kominn eftir þessa meðferð í dag og velti fyrir mér hvers vegna ég sé að þessu yfirleitt. Ef við raunverulega vildum gleðja hvert [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:56
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 15. des 2002
And I find it kind of funny, I find it kind of sad.
The dreams in which I'm dying are the best I've ever had.
I find it hard to tell you, I find it hard to take.
When people run in circles it's a very very mad world
Vildi bara koma því að hér að til er útgáfa [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:44
.
Höfundur:
Borgar .
Kringlan í gær og bærinn í dag því jólagjafaveiðarnar eru í fullum gangi. Kringlan var mjög svo óskemmtileg upplifun því að eftir 3 og hálfa mínútu í örtröðinni er ekki lengur nokkur möguleiki á því að koma að hálfri hugsun. Maður ráfar þarna um eins og uppvakningur þar til að það rennur loks upp fyrir [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
18:44
.
Höfundur:
Borgar .
laugardagur, 7. des 2002
Jólabónusinn kominn í hús. Hagkaup í Spönginni voru svo góðir að lækka þann ágæta svaladrykk faxe kondi niður í 19 kr. dósina (þetta selst ekki og er að renna út). Ég fjárfesti mér auðvitað í kassa enda finnst mér drykkurinn hafa allt það sem góður gosdrykkur þarf; sykur, þrúgusykur, koffín… og örlítið sítrusbragð.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:26
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 5. des 2002
Einhver gaur er búinn að finna upp kynlífslego. Ég vil bara ekki vita hvaða aðstæður kölluðu á þessa uppfinningu: Ég er gröð en maðurinn minn getur ekki beygt mjaðmirnar, Væri til í smá axjón núna en konan mín er ferköntuð…
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:47
.
Höfundur:
Borgar .