Like oldschool!
Ég var að senda inn lag í SID keppni sem er í gangi á C64 portal. Mitt lag er sent in undir scene nikkinu mínu, Oedipus, sem ég notaði alltaf í gamla daga þegar ég var að demóast. Endilega farið og kjósið mig. =)
Í langan tíma núna er ég búinn að vera svo hlaðinn vinnu að lítið annað hefur komist að í lífi mínu en vinna og einstaka útivist. Nú í fyrradag var loksins að lægja aðeins hjá mér og ég gat aðeins stússast í persónulegum verkefnum.
Það fyrsta sem ég gerði var að skrifa mér lítið forrit sem breytir nafninu mínu á MSN Messenger eftir því hvað Winamp er að spila. Ég var búinn að prófa nokkur svona forrit en var ekki sáttur við neitt af þeim… Ég ætti oftar að gera hlutina bara sjálfur því það tók mig enga stund að henda þessu saman (Nullsoft eru með allt vel skjalað).
Nú er bara að sjá hverju öðru ég kem í verk áður en brjálæðið byrjar aftur.
