fimmtudagur, 28. nóv 2002

KK í Austurbæjarbíói

Áðan fór ég að sjá útgáfutónleika KK. Jonni bauð okkur mömmu að sjá og heyra snillinginn glamra sig í gegnum nýja efnið ásamt drjúgum skammti af gömlum þekktum lögum.

Ég verð að játa ákveðna vanrækslu á þessum frábæra listamanni en mér er það nú ljóst að ég þarf að eiganst diskana hans. Ég var einmitt kominn í góða skapið eftir að hafa fundið Yoko Kanno diskinn minn (húrra‼) svo að minns er bara stórkostlega kátur núna!


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings