Kawaiiii!! =^,^=
Ég er á barmi taugaáfalls vegna þess að ég finn ekki Yoko Kanno diskinn minn. Ég er búinn að fara í gegnum alveg ótrúlegt magn af diskum og sennilega búinn að gera illt verra með því að vera að róta þessu öllu til og frá.
Ég aðeins að fá smá hugmynd um magnið af tónlist sem ég á. Það þarf að koma einhverri reglu á þetta en mér fallast bara hendur þegar ég horfi á magnið…
Annars var ég aðeins að fletta Yoko Kanno og Kenji Kawai síðum á netinu í nótt… komst að því að Kenji Kawai á geðveikt fallega ketti. Sem sagt: ekki bara snillingur heldur líka kattavinur (mér líkar yfirleitt sjálfkrafa vel við fólk sem á fleiri en einn kött).
