föstudagur, 22. nóv 2002

Hvað er ég gamall?

Lenti í því í dag að þurfa að taka strætisvagn, eitthvað sem ég geri helst aldrei. Það klikkar ekki að þegar vagninn er búinn með svona 3-4 stopp kemur inn leikskólabekkur, eða eitthvað bilar (oftast hurðirnar)… jú neim it - ég hef séð það. Ég hef ákaflega slæma reynslu af því að nota SVR.

Skildi ég hafa komist í gegnum þetta áfallalaust í dag? Onei… Ég varð fyrir árás ungra menntaskólastúlkna, sem vildu endilega kynnast mér betur. Þær voru að dimmitera og því eins og gefur að skilja á sneplunum og í grímubúningum.

Þær spurðu mig hvort ég væri í sama skóla og þær… Ég glotti bara og sagði þeim að það hefði nú ekki verið búið að byggja hann á þeim tíma sem ég var í menntaskóla! =)


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar