Fjör í undralandi
Það er búið að vera mikið að gera hjá mér í dag á undralandinu. Ég byrjaði á svona almennri yfirferð á servernum og gerði svo smá breytingar á DNS uppsetningu. DNS er eitthvað sem ég kann sama og ekkert á. Það hefur því reynst mér best að fikta bara í draslinu þangað til að ég fæ serverinn til þess að hegða sér rétt.
Ég setti upp nýja síðu fyrir Jonna. Það verður gaman að fylgjast með viðbrögðunum þar á næstu dögum. Hell, það verður nú bara gaman þegar hann vekur mig í fyrramálið í losti (ég er ekki búinn að segja honum neitt).
Hmm.. hvað fleira… Já, ég setti inn nýja útgáfu af MSN-Amp gaurnum. Ekki miklar breytingar komnar en þessi útgáfa er ekki eins gróf þegar kemur að bannorðunum (Microsoft hindra breytingar í nöfn sem innihalda dónaorð).
Setti líka inn nýjustu útgáfu af blogg ritlinum. Ég er búinn að vera latur að uppfæra hann. Auðvitað var ég löngu kominn með betri útgáfu sjálfur en ég átti eftir að gefa skrapatólið út.
