miðvikudagur, 27. nóv 2002

Bond, James Bond

Fór niðrá skrifstofu Sánd áðan og fékk eintök af Bondblaðinu. Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé snepilinn enda ekki áskrifandi að morgunblaðinu. Ég er í alla staði mjög ánægður enda er nánast helmingur greina eftir mig og útlitið alveg massíft.

Það var alveg hrein sturlun í gangi við að koma blaðinu út og virtist þar flest vinna á móti. En á endanum komst þetta í prentun og allt er vel. Ingi ritstjóri fussar yfir nokkrum prentvillum í blaðinu en svona verður víst ekki gert fullkomlega af tveimur geðsjúklingum á nokkrum dögum.

Það er galli hvað maður er orðinn vanur að setja sköpnuði sína í birtingu. Mér ætti sennilega að finnst það frábært að vera gefin út í þessu upplagi en fyrir mér er þetta bara enn eitt verkefnið gert fyrir peninga.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings