Greinasafn fyrir November, 2002

fimmtudagur, 28. nóv 2002

KK í Austurbæjarbíói

Áðan fór ég að sjá útgáfutónleika KK. Jonni bauð okkur mömmu að sjá og heyra snillinginn glamra sig í gegnum nýja efnið ásamt drjúgum skammti af gömlum þekktum lögum. Ég verð að játa ákveðna vanrækslu á þessum frábæra listamanni en mér er það nú ljóst að ég þarf að eiganst diskana hans. Ég var einmitt kominn [...] Lesa áfram...

Fjör í undralandi

Það er búið að vera mikið að gera hjá mér í dag á undralandinu. Ég byrjaði á svona almennri yfirferð á servernum og gerði svo smá breytingar á DNS uppsetningu. DNS er eitthvað sem ég kann sama og ekkert á. Það hefur því reynst mér best að fikta bara í draslinu þangað til að ég [...] Lesa áfram...

miðvikudagur, 27. nóv 2002

Kawaiiii!! =^,^=

Ég er á barmi taugaáfalls vegna þess að ég finn ekki Yoko Kanno diskinn minn. Ég er búinn að fara í gegnum alveg ótrúlegt magn af diskum og sennilega búinn að gera illt verra með því að vera að róta þessu öllu til og frá. Ég aðeins að fá smá hugmynd um magnið af tónlist sem [...] Lesa áfram...

Bond, James Bond

Fór niðrá skrifstofu Sánd áðan og fékk eintök af Bondblaðinu. Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé snepilinn enda ekki áskrifandi að morgunblaðinu. Ég er í alla staði mjög ánægður enda er nánast helmingur greina eftir mig og útlitið alveg massíft. Það var alveg hrein sturlun í gangi við að koma blaðinu út og virtist [...] Lesa áfram...

þriðjudagur, 26. nóv 2002

Ojj, rotta!

Það eru flestir sammála um að rottur séu einhver ógeðslegustu kvikindi sem skriðið hafa á yfirborði jarðar. Rottur skríða um í klóakrörum og niðurföllum stórborga og éta lífrænan úrgang á ruslahaugum. Svo eru þær líka með ógeðslegt hárlaust skott. Mig langar mikið í gælurottu og hefur langað í nokkurn tíma. Ekki nokkur maður sem ég hef [...] Lesa áfram...

föstudagur, 22. nóv 2002

Hvað er ég gamall?

Lenti í því í dag að þurfa að taka strætisvagn, eitthvað sem ég geri helst aldrei. Það klikkar ekki að þegar vagninn er búinn með svona 3-4 stopp kemur inn leikskólabekkur, eða eitthvað bilar (oftast hurðirnar)… jú neim it - ég hef séð það. Ég hef ákaflega slæma reynslu af því að nota SVR. Skildi ég [...] Lesa áfram...

mánudagur, 18. nóv 2002

Úrslit SID-keppni

SID keppnin er loksins búin og var ég kosinn í 9 sæti af 30 með 388 stigum. Allir sem eru fyrir ofan mig eru þekkt nöfn úr geiranum og ég er með efsta coverlag á listanum svo að ég get ekki verið annað en vel sáttur. Lesa áfram...

fimmtudagur, 7. nóv 2002

Success at last!

Svo virðist sem ég sé loksins að fá þá dreifingu sem ég á svo ríkulega skilið. Fólkið mitt er að segja mér að það sé fullt af hyski, mér alls óskylt, komið með MSN-Amp gaurinn minn og er það vel… Ofan á þetta bætist að Leoncie textinn um íslenska karlmanninn sem ég vélritaði inn um daginn [...] Lesa áfram...

föstudagur, 1. nóv 2002

Like oldschool!

Ég var að senda inn lag í SID keppni sem er í gangi á C64 portal. Mitt lag er sent in undir scene nikkinu mínu, Oedipus, sem ég notaði alltaf í gamla daga þegar ég var að demóast. Endilega farið og kjósið mig. =) Í langan tíma núna er ég búinn að vera svo hlaðinn vinnu [...] Lesa áfram...

Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar