Á-I
Ég er búinn að vera u.þ.b. eins þunnur og mögulegt er í dag enda ekki skrítið miðað við það sem gekk á í gærkveldi. Ég var gjörsamlega á perunni - eitthvað sem hefur ekki gerst í marga mánuði… Ég var eiginlega búinn að gleyma því hvað almennilegt fyllerí í góðum hópi getur verið mikil snilld.
Þrátt fyrir sársauka dagsins er stefnan tekin á svipuð ævintýri um næstu helgi, enda er það árlegur grímudansleikur vinahópsins. Þrátt fyrir að búningamálin mín séu u.þ.b. komin í klessu er ég samt fullur tilhlökkunar og ennþá töluvert bjartsýnn á það að ég verði lang-flottastur :-)
