þriðjudagur, 22. okt 2002

Borgar-san í herklæðum

Hér eru loksins komnar myndirnar sem ég lofaði af grímubúningnum mínum. Ég saumaði mér kimono með hakama og öllu tilheyrandi. Það tók mig bara þrjá daga að græja fatnaðinn en sverðin voru hins vegar erfiðari. Ég skar bæði katana og wakizashi úr þreföldum bókbandspappa eftir mynd og málum sem ég fann á netinu.

Það sem ég hef lært af þessu öllu er einfalt: Ég safna aldrei aftur skeggi fyrir grímubúning, næst nota ég svona lím-on stöff!

Ég ætti eiginlega að setja líka hlekki á myndir úr partíinu sjálfu, en það bíður bara betri tíma…


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings